Persónuverndarstefna

AgroTag ApS (info@agrotag.dk) og Búvörur SS (buvorur@ss.is) vinna með þær upplýsingar sem þú gefur upp þegar þú pantar á agrotag.is: nafn, heimilisfang, netfang, símanúmer ef það er gefið upp, bús- og bæjarnúmer, númer dýra og upplýsingar um pöntunina. Nauðsynlegt er að veita umbeðnar upplýsingar svo hægt sé að afgreiða pöntunina.

AgroTag notar upplýsingarnar til að framleiða vörurnar og senda þær til Búvara SS. Búvörur SS nota þær við reikningagerð, afhendingu og þjónustu við viðskiptavini. Vinnslan byggist á pöntun þinni og lagaskyldum, meðal annars vegna bókhalds. Upplýsingum er miðlað milli fyrirtækjanna og til þjónustuaðila eftir því sem nauðsynlegt er til að reka vefinn og afgreiða pöntunina. Engin kortagreiðsla fer fram á vefnum.

Við varðveitum upplýsingarnar meðan þeirra er þörf vegna pöntunar og þjónustu og eins lengi og lög krefjast. Þú getur óskað eftir aðgangi að upplýsingum um þig, leiðréttingu eða eyðingu þeirra og nýtt önnur réttindi þín samkvæmt persónuverndarlögum með því að hafa samband við okkur á netföngunum hér að ofan. Þú getur einnig sent kvörtun til Persónuverndar á personuvernd.is.

Vefurinn notar nauðsynlegar vefkökur fyrir innkaupakörfu og pöntunarferli.