CowManager · Ear Sensor

Einn skynjari.
Heildarsýn yfir hjörðina.

CowManager eyrnaskynjarinn fylgist með nautgripum allan sólarhringinn. Upplýsingarnar hjálpa þér að sjá breytingar fyrr og beina athyglinni að þeim dýrum sem þurfa hennar.

Kálfur, kvíga og kýr með CowManager eyrnaskynjurum

Eyrnaskynjarinn og kerfið

Frá eyrnaskynjara til betri ákvarðana

Skynjarinn situr í eyra nautgripsins við opinbera auðkennismerkið. Hann mælir hitastig í eyra og greinir hegðun sem tengist áti, jórtri og hreyfingu. CowManager sýnir síðan breytingar og viðvaranir svo þú sjáir hvaða dýr þurfa nánara eftirlit.

CowManager eyrnaskynjari, séður framan frá
CowManager eyrnaskynjari

Hvaða upplýsingum er safnað?

Hitastig í eyraÁtJórturHreyfing
01

Skynjarinn fylgist með

Hegðun og hitastig í eyra eru skráð allan sólarhringinn hjá hverju dýri.

02

Gögnin berast í kerfið

Þráðlausir beinar senda upplýsingar úr skynjurunum áfram í CowManager.

03

Þú færð yfirsýn og viðvaranir

Í síma og tölvu sérðu hvaða gripi þarf að skoða og hvernig hjörðin þróast.

CowManager eyrnaskynjarinn styður eftirlit með hjörðinni. Hann kemur ekki í stað opinbers auðkennismerkis eða skoðunar á dýrinu.

Samfelld vöktun

Frá kálfi til kýr

Sami eyrnaskynjari getur fylgt gripnum í gegnum ólík skeið. CowManager hjálpar þér að beina eftirlitinu að því sem skiptir máli hverju sinni.

  1. 01

    Kálfur og kvíga

    Fylgstu með breytingum í hegðun og heilsu ungra gripa.

  2. 02

    Beiðsli og sæðing

    Fáðu vísbendingar um beiðsli og betri yfirsýn fyrir tímasetningu sæðingar.

  3. 03

    Fyrir og eftir burð

    Beindu athyglinni að kúm sem gætu þurft nánara eftirlit á aðlögunarskeiðinu.

  4. 04

    Mjólkurhjörðin

    Fylgstu með heilsu, áti og jórtri í daglegum rekstri.

CowManager á Íslandi

Viltu vita meira um eyrnaskynjarann?

Segðu okkur frá hjörðinni og þeim upplýsingum sem þú vilt fá betri yfirsýn yfir.

Hafðu samband
Upplýsingar um búnað og eiginleika: CowManager Ear Sensor (opnast í nýjum glugga).